Ágætu húseigendur/ leigjendur í Hrísey.

Á föstudeginum fyrir Hríseyjarhátíðina í fyrra buðu nokkrir eyjarskeggjar upp á kaffi heima í garði hjá sér. Uppátækið mæltist mjög vel fyrir og höfum við ákveðið að endurtaka leikinn. Nú auglýsum við eftir þeim sem vilja bjóða upp á garðakaffi í ár  á föstudeginum  10. júlí n.k. frá kl. 16-18.

Upplagt er t.d. að nágrannar slái saman ef vill. Einnig hvetjum við þátttakendur til að skreyta garðana eða umhverfið í kring um húsin  á frumlegan og skemmtilegan hátt. Þemað og aðferðin er frjáls og fengin verður óháð dómnefnd til að velja og verðlauna tvo frumlegustu/flottustu staðina.

Vinsamlega tilkynnið þátttöku sem fyrst, eða í síðasta lagi fyrir 6. júlí með því að senda tölvupóst á netfangið svana@vma.is  eða í skilaboðum á facebook til Svanhildar Daníelsdóttur eða hringið  í síma 6977821 og Svanhildur veitir  ykkur allar nánari upplýsingar.

Með von um gleði og gott veður.

Svanhildur Dan.        Miðbraut 11