Verslunarrekstur í Hrísey

Þá er búið að stofna hlutafélag um verslunarrekstur í Hrísey og mun það heita Hríseyjarbúðin ehf. Kennitala er komin í hús og þá þarf að láta hendur standa fram úr ermum. Hluthafafundur verður haldinn um næstu helgi og mun hlutafé þá verða aukið og hefur verðandi hluthöfum verið sent fundarboð og nánari upplýsingar. Á morgun kl. 17.00 munum við byrja að mála í búðinni og ef einhvern langar að leggja lið þá er endilega að mæta á staðinn.