Hreinsunardagur á laugardaginn

Stóri plokkdagurinn verður haldinn um land allt laugardaginn 24. apríl og í ár ætlum við að samtvinna þann dag við árlegan hreinsunardag okkar Hríseyinga.

Mæting kl. 11 við Hríseyjarbúðina, skiptum okkur niður á svæði og hreinsum fallegu eyjuna okkar. Að hreinun lokinni verður boðið upp á grillaðar pylsur og ostborgara við búðina fyrir alla duglega plokkara.

Hverfisráð Hríseyjar