Hundaeigendur athugið !

Lausaganga hunda er með öllu bönnuð í Hrísey! En hundar eru svo sannarlega velkomnir til Hríseyjar! 
 Hundaeigendur sem heimsækja Hrísey auk þeirra sem eiga hunda sem skráðir eru til heimilis í Hrísey eru vinsamlegast beðnir um að virða þær reglur sem um þá gilda. Ef einhverjar spurningar vakna varðandi gæludýrahald í eyjunni til lengri eða skemmri tíma er hægt að sækja upplýsingar á vef Akureyrarbæjar.