Laumulistasamsteypan Hámundarstöðum

kynnir: LEIÐANGUR í Hrísey helgina 15. - 16. ágúst.  Laumulistasamsteypan er breytilegur hópur listamanna sem kemur saman í annað skipti að Hámundarstöðum og vinnur að uppákomu í Hrísey. Í ár samanstendur hópurinn af 14 listamönnum, íslenskum og erlendum, og ætlar hópurinn að bjóða til leiðangurs í þetta sinn.Laumulistasamsteypan verður að störfum í eynni frá 10. - 17. ágúst í Sæborg, Salthústurninum og hér og þar í bænum. Við bjóðum forvitna velkomna og vonum að sem flestir komi og kíki á okkur í leiðangur um helgina nú eða bara í spjall á meðan á vinnuvikunni stendur. 

www.laumulistasamsteypan.com
www.facebook.com/laumulistasamsteypan