Völundarhús plastsins

Nú í vetur var Jonna - Jónborg Sigurðardóttir með sýninguna Völundarhús plastsins í Listasafninu á Akureyri, sýningin er komin til Hríseyjar þar sem grunnskólabörn á staðnum vinna verk úr endurvinnsluplasti og verður það á sýningunni með völundarhúsinu. Þetta er samstarfsverkefni barna og listamannsins Jonnu þar sem börn og aðrir fá að fræðast um ofnotkun okkar á plasti og umhverfisáhrif þess. 

Undanfarin ár hefur Jonna unnið ýmis verk innblásin af ofneyslu og sóun. Hún vill vekja athygli á að hver manneskja getur lagt sitt af mörkum í umhverfismálum, svo sem með endurnýtingu og notkun fjölnota innkaupapoka. 

Jonna útskrifaðist úr fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri vorið 1995 og sem fatahönnuður frá Københavns Mode- og Designskole 2011. Myndlist hennar spannar vítt svið, allt frá málverki til innsetninga. Hún hefur verið mjög virk í listalífinu á Akureyri síðustu árin; haldið einkasýningar, tekið þátt í samsýningum og staðið fyrir uppákomum.