Wave Guesthouse
Wave Guesthouse býður upp á gistingu í 4 tveggja manna herbergjum með uppábúnum rúmum. Hægt er að panta morgunverð. Allur almennur búnaður er til staðar. Sameiginleg snyrting, setustofa og eldhús.
Húsið var áður prestssetur Hríseyinga og var byggt árið 1935 af Hreini Pálssyni. Nýlega var farið í breytingar og húsið fékk andlitslyfingu þegar ákveðið var að opna gistingu í húsinu. Hrísey er sjávarþorp og þar sem eigendurnir hafa tengingu við sjó og sjómennsku var ákveðið að hafa sjávar- og sjómannsþema í Wave Guesthouse.
Herbergin eru með
- Sameiginlegt baðherbergi með sturtu
- Sameiginlegt eldhús, eldunaraðstaða
- Sameiginleg setustofa
- Þvottavél til afnota fyrir gesti
- Afnot af gasgrilli
- Frítt þráðlaust net
Hægt er að panta morgunverð við bókun.
Nánari upplýsingar má finna á waveguesthouse.is eða með tölvupósti á info@waveguesthouse.com