Samþykktir félagsins
Samþykktir Þróunarfélags Hríseyjar
- kafli
Heiti og markmið félagsins
1. gr.
Nafn félagsins er: Þróunarfélag Hríseyjar. Félagssvæðið nær yfir Hrísey sem og félög, fyrirtæki og einstaklinga með sterka tengingu við Hrísey.
Heimili þess og varnarþing er í Hrísey.
2. gr.
Heimilt er félaginu að gerast aðili að samtökum sem starfa á vettvangi sem samhljóm eiga við mál og hugsjónir er félagið hefur á stefnuskrá sinni.
3. gr.
Þróunarfélagi Hríseyjar er ætlað að stuðla að þróun og uppbyggingu atvinnu i Hrísey með það að markmiði að fjölga atvinnutækifærum, auka fjölbreytileika og samkeppnishæfni þeirra starfa sem í boði eru, skapa hagstæð skilyrði fyrir ný verkefni og tækifæri og efla Hrísey sem eftirsóttan valkost til búsetu.
Þróunarfélaginu er einnig ætlað að vera samráðsvettvangur félagsmanna í sameiginlegum hagsmunamálum.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að; - Taka þátt í og vera leiðandi aðili við mótun atvinnustefnu
2. Efla nýsköpun í atvinnulífinu t.d. með að efna til samstarfs við einstaklinga, stjórnvöld, rannsókna-, mennta- og tæknistofnanir.
3. Stuðla að samvinnu aðila í atvinnulífinu.
4. Miðla upplýsingum um tækni, rekstur og fjármögnunarmöguleika og aðstoða við gerð umsókna og lána.
5. Framfylgja stefnu stjórnar eins og hún er á hverjum tíma
6. Standi vörð um hagsmuni og þróun atvinnulífs í Hrísey. - kafli
Félagsaðild og félagsgjald
4. gr.
Félagi í ÞH getur hver sá einstaklingur orðið sem er fullra 18 ára og aðrir lögaðilar sem eru reiðubúnir að hlíta samþykktum félagsins. Umsókn í félagið skal vera skrifleg og öðlast umsækjandi full félagsréttindi þegar félagsgjöld hafa verið greidd.
Úrsögn úr félaginu skal einnig vera skrifleg og tekur hún gildi strax.
5. gr.
Árgjöld skulu greidd eigi síðar en 1. maí ár hvert. Félagar sem skulda félagsgjöld hafa ekki atkvæðisrétt á aðalfundi félagsins. - gr.
Brjóti félagi alvarlega af sér gegn lögum og reglum félagsins, er stjórn þess heimilt að víkja honum úr félaginu. Brottviknum félaga er heimilt að áfrýja máli sínu til aðalfundar. Ef félaga er vísað úr félaginu vegna ógreiddra félagsgjalda fær hann ekki inngöngu aftur nema greiða að fullu ógreidd félagsgjöld. - gr.
Flokkun félagsgjalda skal miðast við eftirfarandi:
a) Einstaklingar
b) Aðrir lögaðilar
c) Fyrirtæki - kafli
Stjórn, aðalfundur og fjármál / skipulag
8. gr.
Málefnum félagsins er stjórnað af:
a) Aðalfundi
b) Stjórn félagsins.
9. gr.
Aðalfund skal halda ár hvert fyrir lok apríl. Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Til aðalfundar skal boðað með sjö daga fyrirvara með auglýsingu á hrisey.is og/eða í tölvupósti. Séu lagabreytingar fyrirhugaðar skal þess getið í fundarboði ásamt tillögu að lagabreytingum. Einfaldur meirihluti ræður niðurstöðu mála nema lagabreytingum samkvæmt 19. gr. þessara laga.
Dagskrá aðalfundar skal vera:
1) Formaður setur fund og tilnefnir fundarstjóra og fundarritara.
2) Formaður flytur skýrslu stjórnar.
3) Gjaldkeri skýrir reikninga félagsins.
4) Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins.
5) Reikningar bornir undir atkvæði.
6) Árgjöld ákveðin.
7) Þóknun til stjórnar ákveðin
8) Fjárhagsáætlun næsta árs og umræður.
9) Lagabreytingar.
10) Kosningar í stjórn félagsins.
11) Önnur mál.
12) Fundarslit.
10. gr.
Reikningsár félagsins er almanaksárið.
11. gr.
Stjórn félagsins skipa þrír félagsmenn, formaður, gjaldkeri og ritari, sem kosnir eru á aðalfundi félagsins. Einnig skal á aðalfundi kjósa tvo varamenn og tvo skoðunarmenn reikninga félagsins til eins árs.
12. gr.
Stjórnin fer með æðsta vald í málefnum félagsins milli aðalfunda. Stjórn skal halda stjórnarfundi eftir þörfum. Fund skal halda ef minnst tveir stjórnarmenn óska þess. Stjórnin skal framkvæma samþykktir aðalfundar og koma fram fyrir hönd félagsins þar sem við á. Stjórnin skal halda gerðabók um störf sín.
13. gr.
Formaður er fulltrúi félagsins út á við og hefur yfirumsjón með öllum framkvæmdum þess. Formaður boðar til stjórnarfunda með a.m.k. sólarhrings fyrirvara með sannanlegum hætti og stjórnar þeim. Varamenn skulu ávallt boðaðir á stjórnarfundi og skulu þeir hafa tillögurétt og málfrelsi.
Formanni ber að boða til stjórnarfundar ef stjórnarmaður óskar þess. Stjórnarfundir eru löglegir ef þrír aðalstjórnarmenn eru mættir. Allar ákvarðanir verða að vera teknar af meirihluta stjórnar.
14. gr.
Gjaldkeri hefur yfirumsjón með fjárreiðum félagsins, annast greiðslur og innheimtu félagsgjalda. Hann skal fyrir aðalfund ár hvert gera eða láta gera reikningsyfirlit um hag félagsins og leggja reikninga þess endurskoðaða fyrir aðalfund til samþykktar.
15. gr.
Ritari geymir bækur og skjöl félagsins, heldur félagaskrá og ritar gjörðabók á fundum.
16. gr.
Heimilt er stjórn að ráða starfsmann til félagsins og skal það þá þannig gert að um tímabundinn ráðningarsamning sé að ræða.
17. gr.
Stjórn félagsins boðar félagsfund eins oft og þurfa þykir, þó að lágmarki einu sinni á ári. Sama er, ef minnst 1/3 fullgildra félagar æskja þess skriflega og tilgreina fundarefni. Fundur er lögmætur, ef löglega er til hans boðað með opinberri auglýsingu á hrisey.is og samkv. 9 gr. þessara samþykkta.
Afl atkvæða skal ráða úrslitum allra mála á fundum félagsins, nema öðruvísi sé ákveðið í samþykktum þessum.
Formaður eða staðgengill hans setur fundi og lætur kjósa fundarstjóra í byrjun fundarins. Hinn kjörni fundarstjóri úrskurðar í byrjun fundarins, hvort löglega hafi verið til hans boðað. Sé fundur ekki lögmætur, má boða til hans að nýju samkv. 9 gr.
18. gr.
Stjórn félagsins getur skipað nefndir til ákveðinna verkefna. Nefndir eru bundnar af lögum félagsins.
Nefndir, sem stofnaðar eru á aðalfundi, verða ekki lagðar niður nema samkvæmt ákvörðun aðalfundar.
Stjórn skipar formenn nefnda.
IV kafli
Lagabreytingar og félagsslit
19. gr.
Lögum félagsins verður ekki breytt nema á aðalfundi sem löglega hefur verið til boðað og tillögum að lagabreytingum getið í fundarboði. Til að samþykkja lagabreytingu þarf atkvæði 2/3 hluta lögmætra félagsmanna á fundinum.
20. gr.
Stjórn félagsins er óheimilt að selja fasteignir félagsins, kaupa fasteignir eða hefja byggingu þeirra eða stofna til skulda án samþykkis lögmæts félagsfundar. Geta skal um fundarefni í fundarboði.
21. gr.
Ef leggja á félagið niður getur það einungis gerst á aðalfundi með 2/3 hluta greiddra atkvæða. Eignir félagsins skulu renna til félagsstarfa í Hrísey.
22. gr.
Lög þessi eru samþykkt á stofnfundi félagsins þann 22.júní 2023 og öðlast þegar gildi.
Síðast uppfærð: Á aðalfundi 9. maí 2026