Fjarbúðin - fjarvinnuaðstaða
Aðstaða til fjarvinnu og fjarnáms er í Hlein sem er við hliðina á skólanum, ofan við íþróttamiðstöðina. Akureyrarbær samþykkti haustið 2013 erindi þess efnis að Hríseyingar sem eru í fjarnámi eða geta unnið sín störf með fjarvinnslu, gætu fengið að hafa aðstöðu í þessari íbúð í Hlein. Síðan þá hafa bæði námsmenn og starfsfólk úr ýmsum greinum nýtt sér aðstöðuna, m.a. við fjármál, lögfræði, forritun, verkefnastjórnun, úthringingar, símsvörun og ritstörf svo eitthvað sé nefnt.
Fjarvinnusetur Hríseyjar hlaut styrk úr Uppbyggingasjóði Norðurlands eystra 2022 og er samstarfsverkefni Þróunarfélags Hríseyjar og Akureyrarbæjar.
Sumarið 2025 var haldin nafnasamkeppni um fjarvinnusetrið og á á kvöldvöku Hríseyjarhátíðarinnar var tilkynnt um úrslit. Fyrir valinu varð „Fjarbúðin“ en tvö stungu upp á því heiti; þau Hallgrímur Helgason rithöfundur og Anna Guðmundsdóttir. Alls bárust 57 tillögur að nafni á fjarvinnusetrið frá 35 einstaklingum en stundum var um sömu tillöguna að ræða eins og í tilviki Önnu og Hallgríms. Ýmsar skemmtilegar skýringar bárust á tillögunum en vinningstillagan felur í sér skírskotun til bæði fjarbúðar sambúðarfólks og einnig til verbúðar.
Fjarbúð má skilgreina sem svo að átt sé við að einstaklingar sem eru í staðfestri samvist búi ekki saman um hríð, af einhverjum ástæðum, til dæmis vegna atvinnu annars þeirra sem krefst langvarandi fjarvista frá hinu án þess þó að um skilnað að borði og sæng sé að ræða. Verbúð er hins vegar dvalarstaður fiskverkafólks í takmarkaðan tíma eða íverustaður sjómanna á vertíð. Fjarbúð á því vel við um fólk sem stundar vinnu sína fjarri heimili sínum til lengri eða skemmri tíma.
Í upphafi árs 2026 var sótt um styrk fyrir Fjarbúðina í samstarfi við Akureyrarbæ og fékkst styrkur að upphæð 2,64 milljóna króna til uppbyggingar vinnustaðaklasa og mun Akureyrarbær leggja rúmlega 600 þúsund framlag til verkefnisins. Verkefnið er eitt af 26 sem hlutu styrk úr byggðaáætlun stjórnvalda, aðgerð B.7 um Óstaðbundin störf.
Markmiðið er að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni. Þetta er í fyrsta sinn sem styrkir eru veittir sérstaklega til að efla vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Vinnustaðaklasi er skilgreint sem skipulagt og samnýtt vinnurými þar sem fjölbreytt vinnuaðstaða stendur til boða fyrir fleiri en einn vinnustað eða starfsstöðvar vinnustaða. Okkur er það mikil ánægja að koma að þessu verkefni þar sem það fellur undir tilgang félagsins að stuðla að þróun og uppbyggingu atvinnu i Hrísey með það að markmiði að fjölga atvinnutækifærum, auka fjölbreytileika og samkeppnishæfni þeirra starfa sem í boði eru, skapa hagstæð skilyrði fyrir ný verkefni og tækifæri og efla Hrísey sem eftirsóttan valkost til búsetu.
Nánari upplýsingar um Fjarbúðina má finna: