Upplifunarferðaþjónusta og hótelbygging í Hrísey
Þróunarfélag Hríseyjar hlaut styrk að upphæð 1.000.000 kr. úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands Eystra árið 2025 fyrir verkefnið Upplifunarferðaþjónusta og hótelbygging í Hrísey
Í verkefnalýsingu kemur fram að félagið ætlar í samstarfi við Ferðamálafélagi Hríseyjar að þróa upplifunarferðaþjónustu með þjónustuaðilum á svæðinu með það að markmiði að skapa eftirminnilega upplifun fyrir gesti og styrkja rekstrargrundvöll fyrir hótel í Hrísey. Samhliða verður unnin fýsileikagreining og fjárfestakynning fyrir hótelbyggingu í
Hrísey.
Félagið sótti aftur um styrk í uppbyggingarsjóð fyrir árið 2026 fyrir frekari greiningar- og áætlunargerð vegna fyrirhugaðrar hótelbyggingu í Hrísey en hlaut ekki þann styrk.
Fjárfestakynning - glærur
Logo hugmyndir
Nánari lýsing á verkefni
Ferðaþjónusta í Hrísey hefur verið í stöðugri þróun undanfarna áratugi. Boðið hefur verið upp á ýmiskonar ferðir fyrir hópa til Hríseyjar og hafa margar þeirra notið mikilla vinsælda. Sérstaða Hríseyjar hefur þar ætíð verið í forgrunni og meðal annars verið unnið með matarupplifanir og traktorsferðir svo eitthvað sé nefnt. Þar sem lítið er af gistingumöguleikum í eyjunni og ekkert í boði fyrir millistóra hópa setur það ferðaþjónstunni ákveðin takmörk og verða flestir hópar að sætta sig við dagsferðir í eyjuna. Í mörg ár hefur verið rætt um byggingu hótels í Hrísey og ýmsar útfærslur ræddar. Meðal annars var gerð úttekt á því að breyta Syðstabæjarhúsinu í hótel fyrir nokkrum árum. Ljóst þykir að margskonar möguleikar myndu opnast með byggingu hótels sem myndu hafa jákvæð áhrif á samfélagið í Hrísey og jafnframt geta styrkt ferðaþjónustu á svæðinu í kring. Ný störf myndu skapast í tengslum við byggingu hótelsins og rekstur þess síðar meir, ýmis afleidd störf yrðu til og styrkari stoðum yrði rennt undir þá þjónustu sem er þegar í boði ásamt því að fleiri gætu séð tækifæri í frekari uppbyggingu í Hrísey.
Þróunarfélag Hríseyjar var stofnað árið 2023 og er félaginu ætlað að stuðla að þróun og uppbyggingu atvinnu i Hrísey með það að markmiði að fjölga atvinnutækifærum, auka fjölbreytileika og samkeppnishæfni þeirra starfa sem í boði eru, skapa hagstæð skilyrði fyrir ný verkefni og tækifæri og efla Hrísey sem eftirsóttan valkost til búsetu. Stjórn félagsins hefur sett sér það langtímamarkmið að vinna að byggingu hótels í Hrísey og vill taka fyrstu skrefin í þá átt með því að vinna þá undirbúningsvinnu sem þarf til að sýna mögulegum fjárfestum fram á fýsileika hótelbyggingar og þau víðtæki áhrif sem slíkt verkefni getur haft fyrir samfélagið í Hrísey.
Með því að leiða saman þá aðila sem veita þjónustu í Hrísey og nágrenni viljum við byggja upp og styrkja þá ímynd sem Hrísey hefur sem áfangastaður þar sem hrein náttúra, upplifun af kyrrð og ró og náttúrufegurð er einstök og á heimsmælikvarða. Eyjan er sannkölluð útivistarparadís og teljum við fjölmargir möguleikar séu á frekari uppbyggingu í tengslum við hreyfingu og heilsu á borð við göngu- og hjólaferðir, gönguskíði, jóga, slökun og vellíðan ásamt upplifun til að mynda í tengslum við norðurljós, kyrrð, fuglalíf, veiði og matarupplifanir. Allt hangir þetta þó saman og í mörgum tilfellum mikilvægt að geta fengið gesti til að dvelja í eyjunni lengur en yfir dagspart. Þó hótelbygging sé langtímaverkefni má undirbúa jarðveginn og stuðla markvisst að því að upplifun gesta sé jákvæð og eftirspurn verði meiri. Samstarf er þar lykilatriði og þar kemur Þróunarfélagið inn í myndina. Vefurinn hrisey.is inniheldur í dag allar helstu upplýsingar um þá þjónustu og afþreyingu sem er í boði í Hrísey og notfæra bæði íbúar og gestir sér vefinn. Til að miðla enn betur því sem er til staðar ætlum við að láta hanna og útbúa kort af eyjunni sem gefur fólki á myndrænan hátt yfirlit yfir þjónustu og afþreyingu sem er í boði ásamt því að vekja athygli á litlu hlutunum sem geta gefið góða upplifun af heimsókn í eyjuna, má þar nefna áningarstaði, bekki, fjörur, leiktæki og áhugaverða staði. Kortið verður bæði prentað út og á rafrænu formi.
Ýmiskonar hugmyndir hafa skotið upp kollinum varðandi þjónustu við ferðafólk í gegnum tíðina og getur hótel skotið betri stoðum undir verkefni þar sem líkur eru á að ákveðinn kjarni geti notfært sér þjónustu. Bátaferðir umhverfis eyjuna, hjólaleiga, veiðiferðir, núvitundar- og hugleiðsluferðir geta orðið vinsælar meðal gesta hótelsins sem og dagsferðalöngum sem þónokkuð er af í dag. Áherslur munu þróast á verkefnatímanum en meðal hugmynda er að hótelið geti sinnt margskonar markhópum og hýst margskonar námskeið eða viðburði sem meðal annars má tengja við kyrrð, ró, náttúru, hönnun, andlega og líkamlega vellíðan svo eitthvað sé nefnt. Með þessu verkefni verður unnt að hvetja til og styðja við frekari vöruþróun varðandi þjónustu- og afþreytingarmöguleika og hvetja samstarfsaðila og þjónustuaðila á svæðinu til góðra verka í þeim efnum. Með tilkomu kortsins góða og hrisey.is vefsins verður auðveldara fyrir alla að koma upplýsingum á framfæri á samræmdan hátt sem auðveldar gestum og íbúum aðgengi að þeim upplýsingum.
Hótel er fjárfesting af stærri gerðinni og viljum við undirbúa slíka fjárfestingu vel. Með fýsileikakönnun viljum við sýna fram á þá möguleika sem hótelbygging getur skapað og hvaða áhrif slík fjárfesting getur haft fyrir atvinnulíf og íbúaþróun í Hrísey. Til að kynna hugmyndina fyrir fjárfestingum viljum við útbúa vel útfærða fjárfestingakynningu með það að markmiði að koma hugmyndinni skrefinu lengra. Ljósmyndum verður safnað bæði yfir vetrar- og sumarmánuði til að nýta í kynninguna. Logo og markaðsefni verður útfært til að sýna að fólki er alvara og færa hugmyndina þannig nær veruleikanum.