Fjarbúðin
Aðstaða til fjarvinnu og fjarnáms er í Hlein sem er við hliðina á skólanum, ofan við íþróttamiðstöðina. Akureyrarbær samþykkti haustið 2013 erindi þess efnis að Hríseyingar sem eru í fjarnámi eða geta unnið sín störf með fjarvinnslu, gætu fengið að hafa aðstöðu í þessari íbúð í Hlein. Síðan þá hafa bæði námsmenn og starfsfólk úr ýmsum greinum nýtt sér aðstöðuna, m.a. við fjármál, lögfræði, forritun, verkefnastjórnun, úthringingar, símsvörun og ritstörf svo eitthvað sé nefnt.
Fundarsal með aðgang að fullbúnu eldhúsi, er hægt að leigja undir fundi og minni ráðstefnur. Hríseyjarskóli er með salinn undir mötuneyti skólans frá 08:00 - 14:30 mánudaga til fimmtudaga yfir skólaárið.
Fjarbúðin er í opnu rými þar sem eru til staðar fjögur skrifborð með skjá, lyklaborði og mús. Góðir skrifstofustólar eru við hvert borð og borðin eru upphækkanleg.

Samskeppni um nafn á fjarvinnusetrinu var haldin sumarið 2025 og tilkynnt um úrslit á kvöldvöku Hríseyjarhátíðarinnar. Alls bárust 57 tillögur að nafni á fjarvinnusetrið frá 35 einstaklingum. Fyrir valinu varð „Fjarbúðin“ en tvö stungu upp á því heiti; þau Hallgrímur Helgason rithöfundur og Anna Guðmundsdóttir.

Ég og fleiri fjölskyldumeðlimir höfum nýtt okkur fjarvinnuaðstöðuna í Hlein í Hrísey undanfarin ár. Þarna er mjög góð aðstaða til að sinna fjarvinnu hvers konar og góð aðstaða til að matast og hita kaffi. Ég mæli hiklaust með þessari aðstöðu.
Eldhúsaðstaða
Eldhúsaðstaða er til staðar, borðkrókur og góð kaffivél.
Lítið næðisrými er til staðar þar sem hægt er að taka símtal, sitja stuttan fund í næði eða bara setjast með kaffibolla í ró.

Fundarherbergi
Fundarherbergi í Fjarbúðinni er búið góðu borði, sex stólum og stórum skjá.

Skrifstofa Akureyrarbæjar
Eitt skrifborð er inni í skrifstofurými Akureyrarbæjar og hentar það vel undir lengri leigutíma. Stórt upphækkanlegt skrifborð, tveir skjáir, lyklaborð, mús og dokka bíða þess að þú mætir og tengir tölvuna þína við sig!
Fundarherbergi 2
Inn af skrifstofu Akureyrarbæjar er gott fundarherbergi fyrir allt að 8 manns með upphengdum sjónvarpsskjá og vefmyndavél.
Fundarsalur
er á milli norður og suður rýma. Hægt er að leigja salinn undir fundi og minni ráðstefnur. Hríseyjarskóli er með salinn undir mötuneyti skólans mánu- til fimmtudaga yfir skólaárið og salurinn því ekki í útleigu þá daga frá 07:00 - 14:30.
Verðskrá
Dagurinn: 2.600 kr.
Vika: 10.000 kr.
Mánuður: 20.000 kr.
Frítt fyrir námsmenn.
Fundarsalur: 20.000 kr.
Innifalið í verði er aðgangur að aðstöðunni allan sólarhringinn, nettenging (ljósleiðari),
kaffi og kaffibrauð á kaffistofu fyrir fjarvinnu/fjarnám.
Frekari upplýsingar og bókanir: fjarbudin@akureyri.is
Fjarbúðin - fjarvinnusetur Hríseyjar hlaut styrk úr Uppbyggingasjóði Norðurlands eystra 2022
og er samstarfsverkefni Þróunarfélags Hríseyjar og Akureyrarbæjar.

Fjarbúðin hlaut 2,64 milljóna króna styrk úr byggðaáætlun stjórnvalda í mars 2026 til uppbyggingar vinnustaðaklasa.
Alls úthlutaði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra tæpum 50 milljónum króna til 26 verkefna um land allt með það að markmiði að efla vinnustaðaklasa á landsbyggðinni og fjölga atvinnutækifærum. Vinnustaðaklasi er skilgreint sem skipulagt og samnýtt vinnurými þar sem fjölbreytt aðstaða er í boði fyrir ólíka aðila. Styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda til að efla byggðir landsins, sérstaklega á svæðum þar sem atvinnulíf er einhæft eða stendur frammi fyrir áskorunum. Nánar má lesa um málið á vef Stjórnarráðsins.



