Aðalfundur hverfisráðs Hríseyjar
Aðalfundur hverfisráðs Hríseyjar verður haldinn mánudaginn 2.júní 225 klukkan 18:00 í Hlein. Venjuleg aðalfundarstörf. Að loknum aðalfundi verður haldinn íbúafundur.
Skipulagsfulltrúi mætir á íbúafundinn og kynnir drög að deiliskipulagi fyrir svæðið norðan við núverandi þéttbýli. Í kjölfarið verða drögin auglýst á heimasíðum og í blöðum með ákveðnum fresti til ábendinga.
Hægt að lesa frétt um deiliskipulagið frá því 19.febrúar hér.
Að loknum fundarhöldum býðst gestum að skoða nýuppgert og glæsilegt fjarvinnurými í Hlein.
Hverfisráð er kosið til eins árs í senn. Á aðalfundi skal kjósa þrjá fulltrúa í hverfisráð og þrjá til vara.
Áhugasamir frambjóðendur eru beðnir um að senda framboðstilkynningu á netfangið asrun.yr.gestsdottir@akureyri.is fyrir klukkan 12:00 mánudaginn 2.júní.
Hverfisráð Hríseyjar.