Eftir Hinsegin daga í Hrísey 2026
Eftir Hinsegin daga í Hrísey 2026
Þá er fjórðu Hinsegin dögum í Hrísey lokið. Við fengum hugmyndina að þessari hátíð síðsumars 2022, þegar Reykjavík Pride stóð sem hæst og enn á ný komst ekkert
okkar þangað til þess að taka þátt og styðja málstaðinn: “Við höldum bara Hinsegin daga í Hrísey!”
Fyrsta hátíðin var haldin í júlí 2023 og gekk hún ótrúlega vel og við alveg í skýjunum með viðtökurnar. Rúmlega 200 manns mættu í gönguna og tóku þátt með okkur.
Við þrjú erum svo lánsöm að eiga hinsegin börn og fundum þörf til að sýna þeim stuðning í verki í okkar heimabyggð. Árið 2025 fengum við mannréttinda viðurkenningu
frá Akureyrarbæ. Sama ár ákvað Akureyrarbær að standa fyrir Hinsegin hátíð á Norðurlandi og erum við nú samstarfsaðilar í þeirri hátíð sem stendur frá 18. júní og endar með okkar hátíð. Þar gátum við sótt um veglegan styrk og gátum því fengið magnaða listamenn til að koma fram á okkar dagskrá. Við höfum verið ótrúlega lánsöm að fá frábært fólk til að koma fram og í raun fyrir aðeins brot af því sem þau fá annars staðar. Undanfarin þrjú ár hefur hátíðin verið haldin um Jónsmessuhelgina og þó veðrið hafi ekki alltaf leikið við okkur þá er það hugsunin, samheldnin og ákveðnin í að hafa gaman saman sem skiptir máli. Í ár fengum við
styrki frá Akureyrarbæ, Hinsegin Reykjavík, Menju ehf, Guðmari ehf og eins hafa nokkrir einstaklingar lagt okkur lið.Takk allir í Hrísey fyrir að taka svona vel í þetta og taka svona fallega á móti öllum gestum hátíðarinnar með fánum, skreytingum og þátttöku þessa stórkostlegu helgi.
Takk Hinsegin Reykjavík, Samtökin 78, Hverfisráð Hríseyjar, Ukulellur, Crisartista, Elías Dýrfjörð, Hinsegin kaupfélagið, Músikbingó Fanneyjar, Ungmennafélagið Narfi, Svana og Gunni, George Maurer, Syðstibær Guesthouse, Kraka, Gestur Leó, Addi Tryggva, Kiddi Árna, Hríseyjarbúðin, Verbúðin 66, Skógarböðin, Almenningssamgöngur, Cortex Glerártorgi, Vistvæna búðin og allir hinir.
Sjáumst aftur á Hinsegin dögum á sama tíma að ári, sem við erum þegar byrjuð að skipuleggja.
Ingimar Ragnarsson, Kristín Björk Ingólfsdóttir og Linda María Ásgeirsdóttir

