Forsetakosningar - Kosning utan kjörfundar í Hrísey
16.05.2024
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hjá sýslumönnum vegna forsetakjörs þann 1. júní 2024 er hafin. Hægt er að greiða atkvæði utan kjörfunda í Hrísey á skrifstofu Akureyrarbæjar í Hlein, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 11:00- 12:00.
Opið er á eftirfarandi dögum:
- Fimmtudaginn 16. maí
- Þriðjudaginn 21. maí
- Fimmtudaginn 23. maí
- Þriðjudaginn 28. maí
- Fimmtudaginn 30. maí
Nánari upplýsingar um kosningu utan kjörfundar má finna á Ísland.is