Fundur og könnun um félagsstarf 60 ára og eldri í Hrísey

Síðastliðinn miðvikudag var haldinn fundur í Hlein varðandi félagsstarf 60 ára og eldri í Hrísey. Félag aldraðra Hrísey er til en hefur legið í dvala um hríð en ef áhugi er fyrir hendi er tilvalið að endurvekja félagið.
Birna Guðrún, forstöðumaður tómstundamála á Akureyri kynnti starfsemi í félagsmiðstöðvunum Birtu og Sölku á Akureyri og sagði einnig frá starfi EBAK, félagi eldriborgara á Akureyri í fjarveru Karls Erlendssonar formanns sem forfallaðist. Héðinn Svarfdal, verkefnastjóri lýðheilsumála hjá Akureyrarbæ kynnti verkefnið Virk efri ár og í framhaldi var rætt um tækifæri varðandi félagsstarf 60 ára og eldri í Hrísey.
Birna Guðrún sagði m.a. frá því að eitt af markmiðum félagsmiðstöðvanna væri að rjúfa félagslega einangrun og auka lífsgæði. Það er faraldur einmannaleika og félagsmiðstöðvarnar koma þar sterkar inn. Vináttan er mikilvæg og öll viljum við fá að tilheyra og í félagsmiðstöðvarnar er fólk velkomið og flott starf sem þar er unnið. Hún tók fram að Hríseyingum er velkomið að koma í Birtu og Sölku og taka þátt í starfinu þar, nánari upplýsingar má finna á vef Akureyrarbæjar og á facebook síðunni Birta og Salka.
EBAK, Félag eldri borgara á Akureyri, er með fjölbreytta starfsemi fyrir félagsmenn sína og unnið í góðu samstarfi við félagsmiðstöðvarnar. Skrifstofa félagsins er í Birtu í Bugðusíðu og fer starfsemi einkum fram þar. Áhugasamir geta gengið í félagið, greitt árgjald og tekið þátt í starfi félagsins. Allar upplýsingar má finna á ebak.is og á facebook síðu félagsins.
Virk efri ár er verkefni sem er ætlað íbúum Akureyrarbæjar sem eru 60 ára og eldri. Héðinn Svarfdal, verkefnastjóri sagði frá verkefninu og tók fram að Hríseyingum stendur að sjálfsögðu til boða að taka þátt í dagskrá verkefnisins líkt og í félagsmiðstöðvunum en svo eru tækifæri varðandi að koma starfi af stað í eyjunni.
Verkefninu Virk efri ár er fyrst og fremst ætlað að vinna í því að draga úr einangrun og auka vellíðan. Hreyfing stuðlar að betri andlegri og líkamlegri heilsu og ýtir einnig undir félagsleg samskipti og virkni almennt. Allar upplýsingar um verkefnið og dagskrá má finna á vef Akureyrarbæjar og á facebook síðunni Virk efri ár - Akureyri.
Héðinn sýndi glærur með dagskrá og nefndi þar t.d. sundleikfimi, gönguferðir bæði utanhúss og í Boganum, bogfimi, pílukast, frisbígolf í Boganum, styrktaræfingar, H.A.F vatns jóga í Glerárlaug, línudans, ringó, borðtennis, blak, boccia, jóga, badminton, pokavarp og gólfkrulla.
Fyrir Hríseyinga eru tækifærin til staðar, annars vegar að nýta starfið á Akureyri, bæði í félagsmiðstöðvunum og í verkefninu Virk efri ár, en hins vegar að setja af stað Hríseyska útgáfu af starfinu. Umræður voru á fundinum um áhuga fólks og meðal annars nefnt að ánægja var með sundleikfimi og stólaleikfimi og vilji til að koma því af stað aftur. Ýmiskonar hreyfingu má stunda í íþróttahúsinu, auðvelt er að skipuleggja gönguferðir í eyjunni svo eitthvað sé nefnt. Niðurstaða fundarins var að útbúa könnun til að kanna áhuga fólks á félagsstarfi 60 ára og eldri og verða næstu skref tekin í framhaldinu.
Hér er hlekkur á könnun, endilega takið þátt í að móta félagsstarf 60 ára og eldri í Hrísey.

