Hríseyingum boðið um borð í leiðangurskipið SH Vega
06.06.2025
Í Hrísey voru það Linda Maríu Ásgeirsdóttur, formaður Ferðamálafélagsins, Þröstur Jóhannsson skipstjóri á Hríseyjarferjunni og stjórnarmaður Ferðamálafélagsins, Unnur Sæmundsdóttir, æðabóndi og leiðsögumaður, Sirrý Laxdal Jóhannesdóttir, leiðsögumaður, Kristinn Frímann Árnason hafnarfógeti og Gabríel Ingimarsson rekstrarstjóri Hríseyjarbúðarinnar sem fengu boð um borð.
SH Vega er glænýtt leiðangurskip, sem tekur 152 farþega. Skipið kom við á Dalvík og lagði svo leið sína til Húsavíkur. Það siglir SH Vega áfram til Jan Mayen og Svalbarða.
"Við erum mjög jákvæð gagnvart því að taka á móti leiðangurskipum í Hrísey og það var gott að fá að kynnast Swan Hellenic og AECO, svo við getum myndað tengingar við þessi skipafélög." sagði Linda, "Hrísey hefur uppá margt að bjóða og við getum "reddað" hinu ýmsa þótt fyrirvarinn sé stuttur" bætir hún við.
Unnur Sæmundsdóttir er ekki ókunn leiðangurskipum en hún hefur sinnt leiðsögn um borð hjá danska skipafélaginu Albatros Expedition. "Þetta er ótrúlega spennandi ferðamáti og gaman að kynnast fólkinu um borð. Ég hef líka ánægju af að segja frá Hrísey og því sem ég þekki".
Gyða Guðmundsdóttir, yfirmaður samfélagstengsla hjá AECO, er einnig að vinna í verkefninu "Made in the Arctic" þar sem keppst er við að kortleggja upplýsingar um framleiðendur og þjónustuaðila í héraði. "Markmið AECO er að leiðangurskipasiglingar á Norðurslóðum skapi ábata fyrir þá staði sem heimsóttir eru. Með því að safna upplýsingum um það sem er í boði á hverjum stað gerum við meðlimum okkar auðveldara fyrir að kaupa vörur og þjónustu beint af heimafólki". Hún bætir við að ekki vanti uppá vöruframboðið í Hrísey, hvort sem það séu egg, fiskur, æðadúnn, handverk eða vörur úr Hríseyjarhvönn.