Hríseyjarskóli heilsueflandi grunnskóli

Hríseyjarskóli er nú kominn í hóp heilsueflandi grunnskóla á Íslandi. Helstu markmið heilsueflandi skóla eru að skapa skólaumhverfi sem stuðlar að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu og vellíðan nemenda og starfsfólks í samvinnu við heimili og nærsamfélag. Óskað var eftir fólki í heilsunefnd og hefur nefndin nú hist tvisvar sinnum. Í nefndinni sitja skólastjóri, tveir nemendur, fulltrúi kennara, starfsmanna og foreldra sem og einn aðili úr nærsamfélaginu. Næstu skref nefndarinnar eru að búa til heilsustefnu þar sem horft er á allt skólasamfélagið í heild og kynna hana vel. 
Fyrstu áhersluþættirnir sem við munum innleiða eru geðrækt, hreyfing/öryggi, lífsleikni og mataræði/ tannheilsa. Við munum taka þátt almennings íþróttaátökum og síðustu tvær vikurnar hafa nemendur og starfsfólk tekið þátt í lífshlaupinu, sem er skemmtilegt verkenfi á vegum ÍSÍ.

Sjá nánar á hriseyjarskoli.is