Íþróttaþjálfari í Hrísey

Æfingar í boði Narfa
Æfingar í boði Narfa

Hefur þú horft löngungaraugum inn í ræktarsalinn í Íþróttamiðstöðinni en vilt ekki fara inn því þú kannt ekki á tækin? Eða þú ert ekki viss hvernig æfingar virka?

Núna er komið tækifærið til þess að fá smá aðstoð fá fagmanni! 

Ungmennafélagið hefur samið við Helga Snæ um að koma í Íþróttamiðstöðina alla fimmtudaga í október. Mun hann byrja á því að vera með fótboltaæfingar fyrir börn og unglinga en veitir svo leiðsögn í ræktinni eftir þær. Unglingunum býðst að koma í ræktinga milli 16:30 og 17:30 en fullorðnir eru velkomnir milli 17:30 og 18:30.

 

Er þjálfunin í boði UMF Narfa svo það er ekkert gjald, bara mæta, svitna og brosa!