Líf og fjör á þriðjudögum

Farið yfir myndir og bragðað á piparkökum
Farið yfir myndir og bragðað á piparkökum

Það var í september sem farið var af stað með félagsmiðstöð fólksins í Hrísey sem er opin öllum aldri.

Komum við saman í húsi Hákarla-Jörundar alla þriðjudaga milli 11&12, og síðan er val um að fara upp í Hlein þar sem í boði er að kaupa sér hádegismat. Hefur verið góð mæting og fólk almennt ánægt með að hafa samkomustað þar sem hægt er að hittast, fá sér smá kaffi og ræða heimsmálin. Ekki skemmir að komast svo í heitan mat hjá Helenu, matráði Hríseyjarskóla, og að hitta alla skólakrakkana.

Ferðamálafélag Hríseyjar kom með skemmtilegt verkefni sem verið er að leysa þessar vikurnar. Það eru til ótal ljósmyndir af fólki sem bjó eða dvaldi í Hrísey á síðustu öld, og bara hluti mynda er merktur nöfnum þeirra sem á myndunum eru. Vopnuð stækkunargleði, kaffibolla og skiptast á gleraugum, erum við að bera kennsl á fólkið sem er á myndunum. Gengur verkefnið vel, en skemmtilegast er að skiptast á sögunum í kringum myndirnar og myndefnin! Útskýringar á gælunöfnum, mismæli og kækir eru leiknir eftir og greinilegt að eftirminnilegir karakterar hafa verið í Hrísey.

Eru öll sem geta og vilja, innilega velkomin í hús Hákarla-Jörundar á þriðjudögum klukkan 11.