Rannsóknamiðstöð ferðamála auglýsir eftir meistaranema í spennandi rannsóknaverekfni í sumar á sviði ferðamála

Rannsóknamiðstöð ferðamála auglýsir eftir meistaranema í spennandi rannsóknaverekfni í sumar á sviði ferðamála

  • Rannsóknamiðstöð ferðamála leitar eftir meistaranema í hlutastarf í sumar. Um er að ræða hlutastarf í 5 vikur sem dreift verður yfir sumarið. Gert er ráð fyrir að nemi hefji störf í byrjun júní en nákvæm tímasetning er samkomulagsatriði.
  • Rannsóknin snýr að ábyrgri eyjaferðaþjónustu í Hrísey og Grímsey þar sem markmiðið er að leggja grunn að gerð sjálfbærrar áfangastaðaáætlunar. Sjá meira hér: https://www.rmf.is/is/moya/page/abyrg-eyjaferdathjonusta
  • Verkefni nema mun snúa að gagnasöfnum, vettvangsferðum, innslátt og úrvinnslu gagna, og þátttöku í skýrslugerð.

Kröfur um hæfni:

  • Að nemandi sé meistaranemi eða á þriðja ári í grunnnámi í ferðamálafræði, viðskiptafræði eða sambærilegum félagsvísindagreinum
  • Að nemandi hafi lokið áfanga sem snýr að megindlegum rannsóknaraðferðum og kunni á Excel.
  • Að nemandi geti sýnt sjálfstæði í vinnubrögðum
Umsjónaraðili þessa rannsóknarverkefnis er Ása Marta Sveinsdóttir hjá Rannsóknamiðstöð ferðamála. Ef áhugi er fyrir að taka þátt í þessu verkefni endilega hafa samband í gegnum netfangið asamarta@rmf.is. Umsóknarfrestur er til 24. mars næstkomandi.