Sumarstörf í Íþróttamiðstöðinni í Hrísey - ATH lengdur umsóknarfrestur

Íþróttamiðstöðin í Hrísey óskar eftir starfsfólki í hlutastarf til sumarafleysinga. Unnið er á dag- og helgarvöktum.

Helstu verkefni eru:

  • Öryggisgæsla.
  • Þjónusta við gesti staðarins.
  • Gæsla og þjónusta í búningsklefum.
  • Þrif á húsnæði og útisvæði
  • Vinna í þvottahúsi sundlaugarinnar
  • Afgreiðsla

Menntunar- og/eða hæfniskröfur:

  • Gerð er krafa um ríka þjónustulund ásamt því að eiga auðvelt með að umgangast börn sem fullorðna.
  • Góður samstarfsvilji.
  • Kröfur eru gerðar til umsækjenda að þeir hafi góða sundkunnáttu og standist hæfnispróf sundstaða samkvæmt reglum um öryggi á sundstöðum.
  • Reglusemi
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Kostur er að umsækjandi hafi áður unnið við sundlaug
  • Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Íþróttamiðstöðin í Hrísey er reyklaus vinnustaður

Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrar um jafnréttismál við ráðningu í störfin. 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar á netfanginu launadeild@akureyri.is 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Elín H. Gísladóttir í síma 461-4455 eða netfangi: elin@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is

Aðgengi að tölvu og aðstoð við umsóknir stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl 2021