Þorrablótshelgi í Hrísey

Þorrablótshelgi í Hrísey
Þorrablótshelgi í Hrísey

Þorrablótshelgin í Hrísey er að bresta á!

Eyjan okkar fyllist af fólki sem kemur saman til þess að gleðjast, hitta gamla vini, borða á sig gat og dansa svo allt af sér á eftir.

Laugardagurinn er aðal dagurinn að venju og byrjar hann á Þorragraut ferðamálafélagsins í Hlein. Er þetta einn mest sótti grauturinn yfir veturinn og þar byrjar fólk að hita sig upp fyrir kvöldið. Eftir grautinn er um að gera að rölta niður í Hríseyjarbúðina þar sem foreldrafélag og nemendaráð Hríseyjarskóla eru með vinsæla kökubasarinn sinn. Þar verða ýmsar kræsingar til sölu og upplagt að versla bæði eitthvað sætt með kaffitímanum sem og bita til að eiga eftir blót og ball!

Já blót og ball.

Þorrablót Hríseyjar er á laugardagskvöldinu og er þetta stærsti vetrarviðburðurinn í Hrísey. Blótið verður haldið í Íþróttamiðstöðinni og opnar húsið 19:30, blótið hefst 20:00. Vertarnir á Verbúðinni 66 sjá um matinn og eru í óða önn að fylla trogin af súrum og nýjum þorramat. Eftir borðhald og skemmtun mun hljómsveitin Súlur halda uppi stuðinu eitthvað fram á nótt.

Við hvetjum ykkur til þess að mæta á viðburði og taka þátt.

Það verður enginn svikinn af þorrablótshelgi í Hrísey.