Umf. Narfi fær pening að gjöf til að stofna rafíþróttadeild

Elín Árnadóttir ásamt stjórn Umf. Narfa, Díana, Hrund og Ingólfur
Elín Árnadóttir ásamt stjórn Umf. Narfa, Díana, Hrund og Ingólfur

Ungmennafélagið Narfi í Hrísey á marga velunnara sem styðja við félagið á ýmsan hátt. Menja ehf, sem er í eigu hjónanna Árna Ólafssonar og Elínar Árnadóttur hefur styrkt félagið um rúmar 2 milljónir króna til að kaupa búnað og allt það sem þarf til að stofna rafíþróttadeild fyrir börn og unglinga í Hrísey. Keyptar verða 5 fullkomnar tölvur, skjáir og fylgihlutir ásamt PlayStation 5 leikjatölvu og er áætlað að rafíþróttaæfingar hefjist á næstu vikum. Elín, sem ólst upp í Hrísey, tilkynnti um styrkveitinguna á Grautardegi í Hrísey í dag.

Áhugi á rafíþróttum hefur farið vaxandi á undanförnum árum þar sem áhersla er lögð á að tvinna saman tölvuleikjaspilun, hreyfingu og heilsu og munu krakkar í Hrísey nú fá tækifæri til að æfa rafíþróttir við bestu mögulegu aðstæður. Samstarf verður við rafíþróttadeild Þórs á Akureyri varðandi útfærslu á starfinu.

Við í stjórn UMF Narfa eigum ekki orð til að lýsa þakklæti okkar fyrir hönd félagsins en færðum Ellu blómvönd með þakklætiskveðjum til þeirra hjóna við þetta tilefni.