03.01.2018
Þann 1. janúar 2018 tók Andey ehf við sem nýr rekstraraðili hríseyjaferjunnar Sævars. Andey ehf er í eigu Antons M. Steinarssonar skipstjóra á Sævari, Péturs Á. Steinþórssonar vélstjóra á Sævari og Þrastar Jóhannssonar skipstjóra á Sævari.
Lesa meira
13.12.2017
Mánudaginn 18. desember og þriðjudaginn 19. desember verða starfsmenn Slökkviliðs Akureyrar ásamt slökkviliðsmönnum í Hrísey á ferðinni um eyjuna. Tilgangur heimsóknarinnar er að fara yfir eldvarnir heimila í eyjunni. Vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Kveðja,
Slökkvilið Akureyrar
Lesa meira
08.12.2017
Þriðjudaginn 12. desember verður haldinn íbúafundur í Hlein kl. 16:00 þar sem Tryggvi Már Ingvarsson formaður skipulagsráðs og Anna Bragadóttir verkefnastjóri skipulagsmála hjá Akureyrarkaupstað kynna tillögu að nýju Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem nú er í auglýsingu.
Tillöguna er hægt að kynna sér á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: akureyri.is undir Auglýstar skipulagstillögur.
Allir velkomnir
Lesa meira
05.12.2017
Opið frá kl. 14:00 - 16:00
Lesa meira
22.11.2017
Hafnarsamlag Norðurlands bs. (Akureyrarhöfn) óskar eftir að ráða hafnarvörð til starfa í tímavinnu á starfstöð Hafnasamlagsins í Hrísey. Undir Hafnarsamlag Norðurlands bs. falla Akureyrarhöfn, Grenivíkurhöfn, Svalbarðsstrandarhöfn, Hjalteyrarhöfn, Hríseyjarhöfn og Grímseyjarhöfn.
Helstu verkefni eru:
Vigtun sjávarafla og skrá í aflaskráningakerfi Fiskistofu.
Almennt viðhald á eignum hafnarinnar.
Starf hafnarvarðar við móttöku og brottför skipa.
Almenn þjónusta við viðskiptavini hafnarinnar.
Almenn og sérhæfð störf á starfssviði hafnarinnar sem til falla.
Lesa meira
27.10.2017
Tafir hafa orðið á því að Hríseyjarferjan Sævar komi úr slipp. Gert er ráð fyrir að hún komi á laugardaginn 11. nóvember.
Á meðan mun Máni frá Dalvík sjá um ferðir. Viðskiptavinir eru vinsamlegast beðnir um að beina öllum þungaflutningi á Sæfara á meðan á þessu stendur.
Eyfar ehf.
Lesa meira
17.10.2017
Lokað verður föstudaginn 20. október og laugardaginn 21. október. Starfsfólkið ætlar að bregða sér í smáfrí. Opnum aftur föstudaginn 27. október.
Lesa meira
16.10.2017
Þorrablót Hríseyinga verður haldið laugardaginn 3. febrúar 2018 í íþróttahúsinu.
Hljómsveitin Hamrabandið mun leika fyrir dansi.
Lesa meira
13.10.2017
Guðsþjónusta í Hríseyjarkirkju sunnudaginn 15. október kl. 14:00.
Sr. Magnús G. Gunnarsson þjónar fyrir altari.
Lesa meira
04.10.2017
Félagsstarfið hefst mánudaginn 16. október kl. 15.00 í Hlein og verður á mánudögum í vetur nema annað sé auglýst.
Allir 60 + velkomnir í hópinn
Sjáumst hress í Hlein.
Lesa meira