Brynjólfshús - Eyjakaffi

Stína og Biggi

Sumar 2019 - Lokað.

Kaffihús í Hrísey með hlýjum heimilisbrag. 

Birgir Snorrason bakari og Kristín Petra Guðmundsdóttir opnuðu kaffihús í Brynjólfshúsi í Hrísey sumarið 2016. Brynjólfshús stendur við Austurveg, nokkru austar en Íþróttamiðstöðin.

Í Brynjólfshúsi er boðið upp á kaffi, kökur/bakkelsi, brauð, bjór og léttvín. Boðið verður upp á súpu og brauð í hádeginu.

Hægt er að sitja inni eða úti á palli og njóta útsýnisins inn fjörðinn.

Nánari upplýsingar um Brynjólfshús veitir Birgir í síma 864 5901.