14.02.2009
Í gær föstudag fékk Markaðsráðið úthlutað úr Vaxtasamningi Eyjafjarðar kr. 500.000 fyrir verkefnið Perla Eyjafjarðar. Sótt var um til uppbyggingar á ferðaþjónustu í Hrísey og samstarfsaðilar MRH eru Eyfar og Akureyrarstofa. Það er alveg ljóst að svona styrkir efla mjög það starf sem Markaðsráðið hefur verið að vinna og stefnum við nú að því að koma okkur upp aðstöðu og gefa út kynningarefni.
Lesa meira
11.02.2009
Nú er það ljóst að um 235 manns hafa keypt miða á þorrablótið já 235, ótrúlegt.En spennan er að verða gífurleg og mikið álag á nefndinni. En miðana á að nálgast í Brekku á morgun fimmtudag á milli kl 16 og 18 og vonandi að engin troðist nú undir í margmenninu.Fregnir herma að veðurspáin sé mjög hliðstæð okkur og öllum verði bara allir vegir færir.
Lesa meira
07.02.2009
Ég sem er fædd og uppalin í Hrísey, vil lýsa ánægju minni með þessa ráðningu Lindu. Ég skoða síðuna á næstum hverjum degi. Ég hef sérstaklega gaman af gömlu myndunum og greinunum sem Þorsteinn hefur verið svo duglegur að koma á framfæri. Það væri gaman að sjá meira þannig. Einnig er gaman að lesa allar nýju fréttirnar og skoða myndir af hinum og þessum viðburðum. Með kærri kveðju. Lovísa María Sigurgeirdóttir.
Lesa meira
04.02.2009
Laugardaginn 24. janúar tók Markaðsráðið á móti þrjátíu manna hóp, í mat í Hákarlasafninu. Þetta var sölufólk Icelandair í Frankfurt, París og Amsterdam og kom hingað á vegum Akureyrarstofu.
Lesa meira
03.02.2009
Frá og með 1. mars verður Linda María Ásgeirsdóttir ráðin sem starfsmaður MRH í 50% starf. Mun hún sinna markaðssetningu og ýmsum málum fyrir MRH einnig mun heimasíðan verða tekin í gegn og gerð að söluvænni ferðamannasíðu. Allir sem hafa einhverjar hugmyndir eða vilja eitthvað tjá sig um það sem hægt er að gera í Hrísey hikið ekki við að hafa samband. netfang mrh@hrisey.netsími 695-0077 og 891-7293
Lesa meira
03.02.2009
Opið verður í Perlunni laugardaginn 14. febrúar ÞORRABLÓTSDAGINN á milli kl. 14:00-17:00. Tilvalið að kíkja við á meðan beðið er eftir blótinu. Kveðja Perlurnar
Lesa meira
23.01.2009
Jákvæðar fréttir frá Ingibjörgu kennara. Í haust kom upp sú hugmynd að hafa íþróttaskóla fyrir börn á aldrinum 1-5 ára í nýja íþróttahúsinu. Til að kynda undir foreldrum var haldinn opinn dagur og öllum boðið að koma og sjá hvað við ættum mikið að fínu dóti.
Lesa meira
14.02.2009
MIÐASALA MIÐASALA MIÐASALA MIÐASALA MIÐASALAEins og áður hefur komið fram verður Þorrablót í Hrísey haldið með pomp og prakt í nýju Íþróttamiðstöðinni laugardaginn 14. febrúar og hefst kl. 20:00, húsið opnar kl. 19:30.Miðaverð:Matur 4.000 15 ára (1994) og eldriBall 2.500 16 ára (1993) og eldriMatur og ball 5.500Hljómsveitin Sixties sér um að allir geti spriklað fram á nóttMiðapantanir eru á milli kl. 12:00 og 17:00 alla daga í síma:695-2277 (Tedda)695-3141 (Hanna)692-3701 (Guðrún)Miðasölu líkur 4. febrúar og þann dag þarf einnig að vera búið að greiða fyrir pantaða miða.Reikn.nr. fyrir miðasölu er: 1177-05-012626 kt. 571293-2269Nefndin
Lesa meira
10.01.2009
Um leið og við óskum öllum gleðilegs árs og friðar notum við tækifærið og bjóðum í graut á laugardaginn 10. janúar. Að vanda verðum við í Hlein kl. 12.00. Boðið verður upp á graut, súrt slátur og brauð. Gott fyrir meltinguna eftir jólaátið.Allir velkomnir.Stjórn MRH
Lesa meira
04.01.2009
Hvalreki í fjörunni utan við Ystabæ. Sennilega er þarna framhluti af hval, ef myndirnar eru skoðaðar má sjá hvar bægslin eru og eins sést á annari myndinni móta fyrir munni ef vel er að gáð. Ystabæjar fólkið fann þetta dýr á gamlársdag. Gísli Einarsson fréttaritari MRH tók myndirnar.Skoðið myndirnar
Lesa meira