Aðalfundur hverfisráðs Hríseyjar

Aðalfundur hverfisráðs Hríseyjar verður haldinn miðvikudaginn 3. júní 2026 klukkan 18:00 í Hlein. Venjuleg aðalfundarstörf.

Hverfisráð er kosið til eins árs í senn. Á aðalfundi skal kjósa þrjá fulltrúa í hverfisráð og þrjá til vara.

Áhugasamir frambjóðendur eru beðnir um að senda framboðstilkynningu í tölvupósti á netfangið jon.thor@akureyri.is fyrir miðvikudaginn 3. júní.

Hverfisráð Hríseyjar.