Aðventustund í Hríseyjarkirkju og leiðalýsing

Aðventustund verður haldin í Hríseyjarkirkju kl. 16.00 28. nóvember.
Blessuð börnin flytja okkur jólaguðspjallið og við syngjum með. Leikskólakrakkar syngja fyrir okkur og svo kemur fram fjöldi barna frá tónlistarskólanum og leikur á gítar og píanó. Þórður Sigurðarson annast tónlist með sr. Odd Bjarna sér til stuðnings. Svanhildur Daníelsdóttir flytur okkur hugvekju
Kveikt verður á leiðalýsingu að stund lokinni.