Drykkur & djók uppistand á Verbúðinni 66
Akureyringarnir Hannes og Snæfríður mæta í Verbúðina í Hrísey með uppistandið Drykkur & Djók laugardaginn 22. ágúst. Komdu á happy hour og og njóttu þess að fá þér drykk yfir smá djóki.
Hannes Bjarni Hannesson hefur starfað sem sjúkraþjálfari í fjölda ára og er jafnframt liðtækur gítarleikari. Hann gerir góðlátlegt grín að hversdagslífinu, sjálfum sér og öllu því sem flest okkar kannast við. Ekkert er honum heilagt – nema kannski góður hlátur.
Snæfríður Ingadóttir hefur starfað sem blaðamaður í yfir 20 ár og fjallar helst um miðaldra konur, húsasmiði, hjónabandið og Tenerife – og að sjálfsögðu er húllahringurinn alltaf með í för.
📍 Verbúðin, Hrísey
📅 Laugardagur 21. ágúst
🍻 Happy hour kl. 17:00–19:00
🎤 Uppistand hefst kl. 17:30

