Hinsegin Hrísey 2025 - Dagskrá laugardagsins 21. júní.
Regnbogamessa í Hríseyjarkirkju kl. 11.00. Sr Oddur Bjarni Þorkelsson þjónar og við fögnum fegurð fjölbreytileikans.
Gleðigangan leggur af stað frá hátíðarsvæði kl.14.00 að venju verður Siggi Gunnars í aðalhlutverki á stóra vagninum og heldur uppi stuðinu.
Eftir gönguna er dagskrá á hátíðarsvæðinu Siggi Gunnars verður kynnir.
Margrét Erla Maack og Gógó Starr, drottningarnar úr Kjallarakabarett í Þjóðleikhúskjallaranum mæta ásamt fleirum með míni-drag-sirkus fyrir alla fjölskylduna.
Egill Andrason stígur á stokk og flytur tónlist eins og honum einum er lagið.
Flutt verður ávarp.
George Maurer, djasstónlistarmaður og píanóleikari, en hann hefur unnið með stórstjörnum á borð við Eric Clapton, The Crickets (hljómsveit Buddy Holly) og Bobby Vee, þekktum popptónlistarmanni frá sjöunda áratugnum.
Svana Dan býður upp á vinabandagerð á hátíðarsvæðinu.
Sundlaugardiskó fyrir börnin frá kl 16.00 -Ungmennafélagið Narfi.
Kabarett í Sæborg kl 21.00 . Margrét Erla Maack og Gógó Starr ásamt húllakvendinu Bobbie Michelle, sirkusfolanum Nonna og kabarettdívunni Daphne Always. ATH sýningin er sexí og fyndin og hentar ekki börnum né fólki sem óttast undur mannslíkamans.Dj- Margrét Maack eftir sýningu.
Aðgangseyrir 3.000kr.