Ánægt ferðafólk í Hrísey

Niðurstöður könnunar sem gerð var meðal ferðafólks í Hrísey síðasta sumar leiðir í ljós að það eru helst merktar gönguleiðir, náttúran og lega eyjunnar á miðjum Eyjafirði sem dregur fólk til staðarins. Ferðamenn virðast einnig margir hverjir sækja til Hríseyjar til að komast í rólegra umhverfi og til að upplifa friðsældina í eyjunni.

Ferðamenn eru heilt yfir mjög ánægðir með ferðina til Hríseyjar en 92% þeirra meta dvöl sína sem frábæra eða yfir meðallagi góða. Helstu athugasemdir um úrbætur sem ferðamenn nefna í opnum svörum er að merkingar á gönguleiðum mættu vera betri ásamt almennri upplýsingagjöf um Hrísey, hvað sé í boði og hvar allt sé að finna. Hvað varðar samgöngur til Hríseyjar, þá kölluðu ferðamenn sérstaklega eftir samræmdari og betri tengingum milli strætó- og ferjuferða. Strætóferðum mætti fjölga, samræma tímasetningar og hafa strætóstoppistöð nær bryggjunni á Árskógssandi.

Könnunin var á vegum Akureyrarstofu og Ferðamálafélags Hríseyjar og var markmiðið að afla upplýsinga um ferðahegðun og upplifun ferðamanna Í Hrísey. Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) var falið að sjá um úrvinnslu og greiningu á niðurstöðum könnunarinnar.
Niðurstöður könnunarinnar verða hafðar til hliðsjónar við markaðssetningu og uppbyggingu áfangastaðarins Hríseyjar.

Frétt tekin af akureyri.is

 https://www.akureyri.is/is/frettir/anaegt-ferdafolk-i-hrisey