Auglýst eftir Þjónustu- og upplýsingafulltrúa í Hrísey

Þjónustu- og skiplagssvið Akureyrarbæjar auglýsir eftir öflugum liðsauka sem hefur það meginhlutverk að veita íbúum og öðrum viðskiptavinum sveitarfélagsins framúrskarandi þjónustu og upplýsingar. Meginstarfsstöð er í Hrísey en viðkomandi sækir fundi og sinnir afleysingu í þjónustuveri í Ráðhúsi eftir þörfum og aðstæðum.

Í boði er fjölbreytt starf í metnaðarfullu teymi þjónustu og þróunar.

Starfshlutfall er 50% og um ótímabundið starf er að ræða.

Helstu verkefni eru:

  • Símsvörun á skiptiborði fyrir allar starfseiningar Akureyrarbæjar og margvísleg upplýsingagjöf í gegnum síma, netspjall og tölvupóst.
  • Móttaka og úrvinnsla erinda og ábendinga.
  • Tekur á móti viðskiptavinum sem koma á skrifstofu bæjarins í Hrísey, leiðbeinir og aðstoðar eftir þörfum.
  • Náið samstarf við hverfisráð Hríseyjar, ritar fundargerð ráðsins og heldur utan um gögn þess.
  • Innsetning efnis á heimasíðu bæjarins.
  • Öflun frétta, svo sem af mannlífi og þjónustu i Hrísey, textavinna og miðlun á heimasíðu og samfélagsiðla bæjarins.
  • Dagleg umsjón með skrifstofuaðstöðu og sal í húsnæði bæjarins í Hrísey.
  • Tilfallandi verkefni sem snúa að starfsemi sveitarfélagsins í Hrísey.

Menntunar- og/eða hæfniskröfur:

  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
  • Reynsla af textavinnu og/eða miðlun upplýsinga er æskileg.
  • Reynsla af símsvörun og/eða framlínustörfum er kostur.
  • Reynsla af vinnu við samfélagsmiðla er kostur.
  • Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli er nauðsynleg.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og frumkvæði í starfi.
  • Mikil samskiptafærni og þjónustulund.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar í síma 460-1022 eða í netfanginu jon.thor@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9 og hjá Ásrúnu Ýr á netfanginu afram@hrisey.is

Umsóknarfrestur er til og með 19.september 2023

Sækja um hér.