Góður gestur í Hríseyjarskóla.

Listakonan Amanda Maciel Antunes sem dvelur í Gamla – Skóla kom og heilsaði upp á nemendur í hreyfi-stundar tíma í síðustu viku. Hún fékk þau með sér í skemmtilegt verkefni sem hún kallar „Exquisite Corpse„, sem er eins konar framhalds mynd. Hún skipti nemendum í 3 hópa og fékk hver hópur að teikna og lita einn part af veru sem þau fengu að ráða hvernig liti út. Afrakstur verkefnisins voru þrjár furðuverur sem við komum fyrir uppá vegg í holinu í skólanum. Nemendur skemmtu sér vel við þessa vinnu og mun Amanda koma aftur í heimsókn með með nýtt verkefni. Verkefnið má sjá á vegnnum fyrir aftan hópinn.

 skoli