Konukvöld á Brekku.

Laugardagskvöldið 7. mars næstkomandi verður konukvöld á Brekku. Gleðin hefst kl 20:00 og stendur fram eftir nóttu! Fordrykkur að hætti hússins. Matseðill: Kjúklingasalat með mangó og balsamiksósu, heimabakað brauð. Í eftirrétt er síðan heimabökuð súkkulaðikaka með rjóma. Dagskrá: Agnes Sigurðardóttir frá Kalda verður með bjórkynningu og segir okkur frá þessu frábæra fyrirtæki.Þá koma til okkar bæjarfulltrúarnir Sóley Björk Stefánsdóttir og Eva Hrund Einarsdóttir og spjalla á léttu nótunum um konur og pólitík og lífið almennt. Urður Snædal les fyrir okkur skemmtileg ljóð og miðlar af visku sinni. Happdrætti með skemmtilegum vinningum. Heimir Ingimars tekur með okkur nokkur lög yfir borðhaldi og verður svo með stemningu fram eftir nóttu. Húsið opnar síðan kl 23:00 fyrir karlpeninginn. Verð aðeins 3.900 kr. Miðapantanir í síma 891-9614 / 693-2959 fyrir miðvikudaginn 4. mars!