Sumarstörf við Íþróttamiðstöðina í Hrísey

Íþróttamiðstöðin í  Hrísey óskar eftir sumarstarfsfólki. 

Um er að ræða 70-90% starf 

Helstu verkefni eru:

  • Öryggisgæsla.
  • Gæsla og þjónusta í búningsklefum.
  • Afgreiðsla.
  • Þrif á húsnæði og umhverfi s.s. búningsklefum karla og kvenna, sundlaug og pottum.
  • Þrif og umsjón tjaldsvæðis. 

Menntunar- og/eða hæfniskröfur: 

  • Gerð er krafa um ríka þjónustulund ásamt því að eiga auðvelt með að umgangast börn sem fullorðna.
  • Góður samstarfsvilji.
  • Kröfur eru gerðar til umsækjenda að þeir hafi góða sundkunnáttu og standist hæfnispróf sundstaða samkvæmt reglum um öryggi á sundstöðum.
  • Reglusemi og stundvísi.
  • Sjálfstæð vinnubrögð.
  • Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu. 

Íþróttamiðstöðin í Hrísey er reyklaus vinnustaður

Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrar um jafnréttismál við ráðningu í störfin.  

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu. 

Upplýsingar um kaup og kjör veitir Starfsmannaþjónusta Akureyrarbæjar í síma 460-1060.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar í síma 461-4455 eða netfangi: elin@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is

Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða í þjónustuanddyri Ráðhússins.

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2016.

Would you like to work for the town of Akureyri?

Visit our webpage: www.akureyri.is/english