Sumarstörf við Íþróttamiðstöðina í Hrísey

Íþróttamiðstöðin í Hrísey óskar eftir sumarstarfsfólki. Um er að ræða 50-80% starf

Helstu verkefni eru:

  • Öryggisgæsla.
  • Gæsla og þjónusta í búningsklefum.
  • Afgreiðsla.
  • Þrif á húsnæði og umhverfi s.s. búningsklefum karla og kvenna, sundlaug, pottum og íþróttasal.
  • Þrif og umsjón tjaldsvæðis.

Menntunar- og/eða hæfniskröfur:

  • Gerð er krafa um ríka þjónustulund ásamt því að eiga auðvelt með að umgangast börn sem fullorðna.
  • Góður samstarfsvilji.
  • Kröfur eru gerðar til umsækjenda að þeir hafi góða sundkunnáttu og standist hæfnispróf sundstaða samkvæmt reglum um öryggi á sundstöðum.
  • Reglusemi og stundvísi.
  • Sjálfstæð vinnubrögð.
  • Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Íþróttamiðstöðin í Hrísey er reyklaus vinnustaður

Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrar um jafnréttismál við ráðningu í störfin. 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar í síma 460-1060 á milli kl 11:00 og 16:00 virka daga.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Elín H. Gísladóttir og Ólafur Arnar Pálsson í síma 461-4455 eða netfangi: elin@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is

Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða í þjónustuanddyri Ráðhússins.

Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2018