Fréttir

Hreinsunardagur í Hrísey

Almennur hreinsunardagur verður laugardaginn 11. júní kl. 11.00. Safnast verður saman við Hlein og haldið þaðan í hreinsunarleiðangur um þorpið. Að hreinsun lokinni verður boðið upp á grillaðar pylsur við Hlein. Mætum öll og hreinsum eyjuna okkar. Hverfisráð
Lesa meira

Sjómannadagshelgin í Hrísey

Að venju fer dagskrá sjómannadagsins fram á laugardeginum fyrir sjómannadag.
Lesa meira

Aðgerðaáætlun Brothættra byggða og auglýsing um styrki

Frá verkefnastjóra Brothættra byggða Helgu Írisi Ingólfsdóttur. Hér má sjá aðgerðaáætlun verkefnisins og auglýsingu um styrki sem hægt er að sækja um.
Lesa meira

Gamli skóli

Listamennirnir sem dvalið hafa í Gamla skóla í Hrísey frá maíbyrjun bjóða ykkur að vera við sýningu sunnudaginn 29. maí í Gamla skóla frá kl. 16.00. Á sýningunni verða alls kyns verk þar á meðal skúlptúrar, ljósmyndir og teikningar. Sýningin verður öllum opin. Endilega látið alla áhugasama vita og bjóðið þeim með! Vonumst til að sjá ykkur í Hrísey! Louisa , Nick og Tom .
Lesa meira

Hríseyjarhátíð 2016

Fundur vegna hátíðar í húsi Hákarla Jörundar kl. 17.00. Nú vantar okkur fólk til að starfa með til að hátíðin geti orðið.
Lesa meira

Aðalfundur hverfisráðs/íbúafundur

Miðvikudaginn 25. maí kl. 16.00 í Hlein. Bæjarstjóri og fulltrúar frá Akureyrarbæ mæta á fundinn. Fjölmennum og tökum þátt í umræðunni. Kosið verður í Hverfisráð fyrir næsta starfsár. Þeir sem vilja gefa kost á sér til setu í ráðinu tilkynni það með tölvupósti á “lindamaria@akureyri.is” eða til Lindu Maríu í síma 891-7293 fyrir þriðjudaginn 24. maí. Hverfisráðið.
Lesa meira

Hvítasunnuhelgin í Hrísey.

Opnunartími sundlaugar: Laugardaginn 14. og sunnudaginn 15. maí kl. 13.00 - 16.00. Hríseyjarbúðin er opin laugardaginn 14. og mánudaginn 16. maí kl. 13.00 - 17.00. Verbúðin 66 opin laugardaginn 14. maí kl. 16:00 - 23.00, sunnudaginn 15. maí kl. 15.00 - 23.00 og mánudaginn 16. maí kl. 15.00 - 20.00.
Lesa meira

Hríseyjarkirkja

Guðsþjónusta verður í Hríseyjarkirkju sunnudaginn 8. maí kl. 14:00. Sr. Oddur Bjarni þjónar fyrir altari og organisti er sr. Magnús G Gunnarsson. Börn eru hvött til að mæta með bangsa eða dúkkur, sem Oddur Bjarni mun (skíra). Eftir guðsþjónustuna verða grillaðar pylsur. Aðalsafnaðarfundur Hríseyjarsóknar verður haldinn að guðsþjónustu lokinni. Venjuleg aðalfundarstörf. Sóknarnefnd Hríseyjarsóknar.
Lesa meira

Íþróttamiðstöðin í Hrísey

Íþróttamiðstöðin er opin frá 13.00 -16.00 á morgun Uppstigningardag
Lesa meira

Völundarhús plastsins

Völundarhús plastsins fer til Hríseyjar þar sem grunnskólabörn og listamaðurinn Jonna vinna verk úr endurvinnsluplasti og sýna afraksturinn í Sæborg fimmtudaginn 5. maí kl. 14:00 - 17:00.
Lesa meira